Veisluborđ á Sjóaranum síkáta

  • Fréttir
  • 31. maí 2012

Eftirfarandi viðtal birtist í Fréttablaðinu í dag: „Þorsteinn Gunnarsson, upplýsingafulltrúi Grindavíkurbæjar, segir að á hátíðinni Sjóaranum síkáta, sem fer fram um helgina, verði fjölbreytt dagskrá með eitthvað fyrir alla. Hann hvetur fólk í nærsveitum og víðar til að líta við.

 

Hátíðinni Sjóaranum síkáta, sem hefst í dag, hefur vaxið fiskur um hrygg undanfarin ár og dagskráin verður glæsilegri með hverju ári sem líður. "Allir ættu að fá eitthvað fyrir sinn snúð, hvort sem það eru börn, unglingar eða eldra fólk. Þetta er sannkölluð fjölskylduhátíð og við hvetjum fólk til að renna til Grindavíkur. Það er ekki nema hálftíma akstur frá Reykjavík, svo er um að gera fyrir Sunnlendinga að keyra Suðurstrandarveginn," segir Þorsteinn.

Bæjarbúar taka þátt

Í aðdraganda hátíðarinnar er bænum skipt í fjögur litahverfi; Rautt, blátt, grænt og appelsínugult. Í hverju hverfi er starfandi hverfisstjóri og ýmsar nefndir, þar á meðal skreytinganefnd sem sér um almennar skreytingar í hverfunum. Mikill keppnisandi hefur hlaupið í fólk og hugmyndaríkar skreytingar prýða hús og umhverfi. "Bærinn er ótrúlega líflegur að sjá; gínum er stillt upp á þök, sturtuklefar settir út í garða, bátar málaðir og dregnir inn á lóðir, ýmsar uppstillingar, skreytingar og annað skemmtilegt að sjá." Á föstudagskvöldið er heljarinnar götugrill þar sem íbúar hverrar götu grilla saman. Að því loknu sameinast íbúar hvers hverfis í skrúðgöngu, öll hverfin mætast svo hjá kirkjunni þar sem gengið er niður að menningarhúsinu Kvikunni niðri við höfnina.  "Það er stórbrotið sjónarspil að sjá alla bæjarbúa, unga sem gamla samankomna í litskrúðugum búningum með óteljandi blöðrur, á bílum og vögnum, traktorum og fleiru að fagna saman."

Kvöldskemmtanir

Í kvöld mun Raggi Bjarna ásamt einvala liði hljóðfæraleikara halda tónleika þar sem flutt verða gömlu sjómannalögin. Á veitingahúsinu Kantinum verður svo reggýhljómsveitin Hjálmar ásamt hljómsveitinni Funk That Shit sem hitar upp. Á föstudagskvöld er svo götugrill og skrúðganga sem endar með stórskemmtilegu bryggjuballi niðri við

höfn þar sem Páll Óskar mætir, Ingó og Veðurguðirnir, Hreimur og karlakór Sjómannaskólans ásamt listamönnum úr heimabyggð. Í Salthúsinu spilar Grindvíska hljómsveitin R.I.P. og á Kantinum verða Úlfur Úlfur og MC Gauti ásamt plötusnúði.

Á laugardagskvöldið verður ball með Páli Óskari í íþróttahúsinu, Skítamórall og Blúsmenn Andreu Gylfa verða í Salthúsinu, Geirmundur Valtýsson á Kantinum ásamt fleiri uppákomum. Á sunnudagskvöldið mætir hljómsveitin Valdimar og heldur tónleika í Íþróttahúsinu og rennur allur ágóði til björgunarsveitarinnar Þorbjarnar. "Þessi glæsilega dagskrá, utan aðalsviðsins, er sjálfstætt framtak þeirra sem eiga skemmtistaðina hér í bænum. Þetta er því að breytast í eina stærstu tónlistarveislu sem haldin er hér á suðvesturhorninu."

Fjölskylduhátíð

Nóg er um að vera fyrir yngstu kynslóðina og líklegra að hún nái ekki að taka þátt í nema broti af þeim

viðburðum og uppákomum sem í boði eru. "Það verða glæsileg atriði á aðalhátíðarsvæðinu við höfnina. Solla stirða og Skoppa og Skrítla mæta á svæðið og sterkustu menn Íslands munu etja kappi. Svo eru hefðbundin leik- og tívolítæki, reykköfun með leikhúsreyk fyrir 14 ára og eldri, veltibíll frá Sjóvá, lazer tag, gokart bílar, ratleikur, bátsferðir, hestateyming, fornbílasýning, sjópulsa, dorgveiði og brúðubíllinn, ásamt ótal fleiri viðburðum."

Flottasta tjaldsvæði landsins

Vilji fólk gera sér ferð til Grindavíkur og gista á tjaldsvæðinu er það vel búið. "Þeir segja það helstu spekingarnir í þessum málum að þetta sé flottasta tjaldsvæði landsins," segir Þorsteinn stoltur. Tjaldvæðið var opnað 2009 og er alls 13.500 fermetrar með tveimur leiksvæðum fyrir börn með rólum, tveimur köstulum og kóngulóarneti. Þjónustuhús á tjaldsvæðinu er með fullkomnu eldhúsi fyrir gesti til að elda, þvottahúsi, sturtum, interneti og fleiru.

Sjómenn heiðraðir

Aðalhátíðarhöldin eru á sunnudeginum enda er það sjómannadagurinn. "Þá eru sjómenn heiðraðir fyrir störf sín og veittar heiðursviðurkenningar. Svo er auðvitað kappróður og koddaslagur og fleira sem á sér áratuga hefð á sjómannadegi. Þó að hátíðin vaxi er haldið í hefðir og venjur, enda er uppruna og styrk okkar að finna þar."

Annað á dagskrá

Auk skemmtiatriða á aðalsviðinu er fjöldinn allur af myndlistar-, ljósmynda- og handverkssýningum víðs vegar um bæinn. Einnig er handverksmarkaður á bryggjusvæðinu þar sem hægt er að gera kjarakaup á glæsilegum munum, fatnaði og öðru. "Ekki má gleyma því að það eru haldin Íslandsmót í ýmsu hérna um helgina. Sterkasti maður Íslands, Íslandsmótið í netagerð, sjómanni og kerlingahlaupi ásamt fleiri keppnum," upplýsir Þorsteinn. Allar nánari upplýsingar um Sjóarann síkáta er að finna á heimasíðu Grindavíkur: www.grindavik.is.

 


Deildu ţessari frétt

AĐRAR FRÉTTIR

Fréttir / 9. apríl 2024

Pistill bćjarstjórnar 9. apríl

Fréttir / 5. apríl 2024

Zimna woda w Grindavík

Fréttir / 3. apríl 2024

Hlúum ađ heilsunni. Ókeypis kostir