Undanfarin ár hefur Sigrún Jónsdóttir Franklín verið með skemmtilegan söguratleik í tengslum við Sjóarann síkáta sem teygir sig fram að Jónsmessugleðinni. Söguratleikur Grindavíkur 2012 hefur þemað „söguminjar"; þurrkbyrgi, ísbyrgi, sjóvörður, refagildrur, þurrkgarðar, sjóvarnargarðar, landamerkjavörður, sjó- og verslunarbúðir - allt minjar sem minna á forna tíð í Grindavík.
Ratleikurinn er auðveldur og fróðlegur útivistarleikur, sem stendur frá upphafi Sjóarans síkáta fram að Jónsmessu. Leitað er að spjöldum á stöðum sem merktir eru á ratleikskortið eða vísað á þá. Sjá nánar hér í Járngerði á bls. 12-13 en þar er blað til að fylla út skal svo skila í Kvikuna.