Dagskrá Sjóarans síkáta 2012 er tilbúin og má sjá hér á heimasíðu hátíðarinnar. Dagskráin hefur að sögn kunnugra aldrei verið glæsilegri en henni verður dreift í hús í Grindavík um helgina og svo á öllum Suðurnesjum og víðar.
Sjómanna- og fjölskylduhátíðin Sjóarinn síkáti í Grindavík hefur fest sig í sessi sem ein skemmtilegasta og fjölbreyttasta bæjarhátíð landsins, haldin um Sjómannadagshelgina, 1. - 3. júní 2012, til heiðurs íslenska sjómanninum og fjölskyldu hans.
Hátíðin hefur vaxið með hverju árinu, þar er fjölbreytt dagskrá alla helgina en mikið er lagt upp úr vandaðri barnadagskrá. Líkt og undanfarin þrjú ár verður bænum skipt upp í fjögur litahverfi.
Sjóarinn síkáti: sjoarinnsikati@grindavik.is • www.sjoarinnsikati.is
Umsjón: Grindavíkurbær í samstarfi við Sjómanna- og vélstjórafélag Grindavíkur.
Framkvæmd:
Kristinn Reimarsson frístunda- og menningarfulltrúi. Sími 420 1120. kreim@grindavik.is
Þorsteinn Gunnarsson, upplýsinga- og þróunarfulltrúi. Sími 420 1122. thorsteinng@grindavik.is
Hverfaskipting:
Appelsínugula hverfið (bátar) • Liðsstjóri: Jón Berg Reynisson jonbr@centrum.is. Sími 893 6072.
Bláa hverfið (krabbar) • Liðsstjóri: Vilhelm Arason, villiara@simnet.is. Sími 861 5002.
Græna hverfið (skeljar) • Liðsstjóri: Linda Sylvía Hallgrímsdóttir, bb81@simnet.is. Sími 868 1907.
Rauða hverfið (fiskar) • Liðsstjóri: Valfríður Hulda freda@grindavik.is. Sími 847 9859.
Dagskrá 2012 - Hefur aldrei verið glæsilegri. Smelltu hér.