Presley kom til bjargar - dró bát til Grindavíkur

  • Fréttir
  • 23. maí 2012

Hætta skapaðist í nótt þegar vélin bilaði í litlum fiskibáti með einum manni um borð, þegar báturinn var staddur skammt undan Reykjanesi og tók að reka í átt að grýttri ströndinni.  Stjórnstöð Gæslunnar og vaktstöð siglinga kölluðu þegar út björgunarskip frá Grindavík og á nálæga fiskibáta. Fyrst tókst að koma taug yfir í annan fiskibát, en hún slitnaði ítrekað.

Kom þá fiskibáturinn Presley GK á vettvang og kom annari taug yfir í bátinn, sem hélt, en töluverður straumur var á svæðinu.

Presley lagði þegar af stað með bátinn í drætti áleiðis til Grindavíkur og fylgdi björgunarskipið bátunum til hafnar í Grindavík í nótt. (Vísir).


Deildu ţessari frétt

AĐRAR FRÉTTIR

Fréttir / 9. apríl 2024

Pistill bćjarstjórnar 9. apríl

Fréttir / 5. apríl 2024

Zimna woda w Grindavík

Fréttir / 3. apríl 2024

Hlúum ađ heilsunni. Ókeypis kostir