Hafiđ Bláa Hafiđ međ Ragga Bjarna á Salthúsinu viđ upphaf Sjóarans síkáta

  • Fréttir
  • 22. maí 2012

Á fimmtudagskvöldið 31. maí við upphaf Sjóarans Síkáta verða tvennir tónleikar, Hafið Bláa Hafið, haldnir á Salthúsinu. Fyrri tónleikarinr hefjast stundvíslega kl. 20:00 og þeir seinni kl. 22:15. Öll gömlu góðu sjómannalögin verða flutt af Ragga Bjarna og valinkunnum tónlistarmönnum. 

Þeir eru Pálmi Sigurhjartarson á píanó og harmónikku, Ásgeir Ásgeirsson á gítara og mandólín, Jökull Jörgensen á bassa og Halldór Lárusson á trommur.

Einnig munu tveir gestasöngvarar heiðra samkomuna en það eru þau Mjöll Hólm og Dagbjartur Willardsson sem munu taka nokkur lög.

Fyrir þá sem vilja panta sér borð og gæða sér á ljúffengum kvöldverði fyrir fyrri tónleikana kl. 20:00 þá er um að gera að panta sér borð sem fyrst. Að fyrri tónleikunum loknum er gestum velkomið að setjast á efri hæð Salthússins og gera sér glaðan dag meðan gestir á seinni tónleikana koma sér fyrir.

Forsala miða er hafin á Salthúsinu s: 426 9700 og hjá Halldóri trommuleikara sími 893 0019.


Deildu ţessari frétt

AĐRAR FRÉTTIR

Fréttir / 9. apríl 2024

Pistill bćjarstjórnar 9. apríl

Fréttir / 5. apríl 2024

Zimna woda w Grindavík

Fréttir / 3. apríl 2024

Hlúum ađ heilsunni. Ókeypis kostir