Þeir sem vilja koma sér í stuð fyrir Sjóarann síkáta ættu að hlusta á lag Jóns Fanndals Bjarnþórssonar pípulagningameistara sem samdi lagið um Sjóarann síkáta 2010. Lagið má hlusta á hér.
Jón er einn af mörgum Grindvíkingum sem fitla við tónlist í frítímanum án þess að hafa hátt um það. Hann gerði sér lítið fyrir og samdi bæði lag og texta sem ber heitið Sjóarinn síkáti til heiðurs sjómannahátíðinni í Grindavík, skellti sér í hljóðver og hefur nú gefið út lagið á vefnum Tónlist.is.
Að sögn Jóns var hugmyndin fyrst og fremst að senda lagið í sjómannalagakeppni Rásar 2.
,,Ég tók lagið upp í hljodver.is. Það var gaman að prófa og fara í stúdíó og setjast fyrir framan hljóðnema og syngja eigið lag. Það er meira en að segja það. Þetta lag liggur ágætlega, hljómasamsetningin gengur upp og ég hef fengið mjög jákvæð viðbrögð," segir Jón Fanndal sem hefur samið nokkur lög en þetta er það fyrsta sem hann tekur upp.