Benedikt Karl Gröndal er ungur og efnilegur leikari úr Grindavík, sem frumsýndi í gær eigið verk, Fastur, fyrir fullu húsi hjá Norðurpólnum. Leiksýningin Fastur er fyrsta sjálfstæða leikverkið eftir Benna, eins og hann er yfirleitt kallaður. Hann segir m.a. að þátttaka í árshátíðarleikritum grunnskólans hafi verið kveikjan að leiklistaráhuga sínum. Ritstjórn vefsíðu skólans tók viðtal við Benna í gær, frumsýningardag og það var eðlilega mikil spenna í loftinu.
Benedikt er fæddur og uppalinn í Grindavík. Hann segir að unglingsárin hafi verið góð í Grindavík en eftir að hann útskrifaðist úr grunnskóla langaði hann að flytja til borgarinnar. „Ég vildi fara í menntaskóla þar. Þannig að eftir 10. bekk fór ég í Kvennaskólann í Reykjavík. Tími minn þar var hreint frábær og ég mæli hiklaust með honum. Eftir Kvennó fór ég síðan í leiklistarskóla í Kongens Köbenhavn sem heitir The Commedia School."
Hvers vegna leiklistin?
„Ég var aldrei mikill bóknámsmaður. Mér þótt skemmtilegast í listfögunum og verkgreinunum. Það voru mín sterkustu fög. Ég teiknaði rosalega mikið þegar ég var yngri og ætlaði lengi vel að verða myndlistarmaður en komst fljótlega að því það fannst mér ekki vera nóg. Ég fékk ekki nógu mikið út úr því að teikna bara. Það vantaði eitthvað. Þegar ég tók svo þátt í árshátíðarleikritinu í 9. og 10. bekk þá fattaði ég að þetta væri það sem mig langaði að gera í lífinu. Þegar maður er leikari eða leikhúslistamaður þá gefst manni möguleiki á því að búa til myndir, segja fólki sögur, hreyfa kannski við fólki. Mér fannst þetta vera magnað. Ég tala nú ekki um athyglina sem maður fékk en í dag skiptir hún ekki máli. Það sem skiptir máli er að segja góða sögu, hafa gaman og skemmta öðrum."
Hver eru þín helstu verk eftir að þú útskrifaðist sem leikari?
„Eftir útskrift hef ég verið að leika hér og í Danmörku. Síðasta sumar lék í barnasýningu sem ferðaðist um Danmörku. Svo nú í vetur lék ég í Endalokum alheimsins með Grindvíska atvinnuleikhúsinu. Núna er ég að leika í nýjum einleik án orða sem heitir Fastur. Hann er eftir mig og leikstjóra sýningarinnar, Árna Kristjánsson. Fastur verður frumsýndur 17. maí og það er mikil spenna í loftinu, enda frumsýning í kvöld! Svo seinna í sumar mun ég leika í trúðasýningu sem heitir Trúðleikur og hann verður sýndur í leikhúsinu Frystklefanum á Rifi á Snæfellsnesi. Svo hef ég líka verið að leikstýra menntaskóla- og áhugaleikfélögum."
Veggspjald verksins Endalok alheimsins sem sýnt var í Kvikunni hér í Grindavík
Hver varð kveikjan að verkinu Fastur?
„Ég fékk þessa hugmynd um það bil sem ég var að útskrifast úr leiklistarskólanum úti. Í skólanum unnum við mikið með leiklist án orða. Það leikhúsform heillar mig mikið og því var auðvellt að ákveða að sýningin yrði án orða. Í sannleika sagt man ég ekki hver kveikjan var en ég man að ég hugsaði: "Hvað gerir maður sem er fastur í einhverju rými og kemst ekki út?" Þessi hugmynd fékk að gerjast í kollinum mínum lengi, þ.e. 3 ár þangað til núna. Á þessum 3 árum vann ég hin ýmsu störf en gleymdi þessari hugmynd aldrei. Ég fékk alltaf fleiri og fleiri hugmyndir og ég var duglegur að skrifa þæri niður og jafnvel teikna myndirnar sem ég var með í kollinum."
Benedikt í hlutverki sínu í verkinu Fastur
Hvaðan sækirðu innblásturinn?
„Það sem veitir mér innblástur er svo margt. Alls kyns vitleysa. Allt sem mér finnst fyndið og áhugavert. Allt frá teiknimyndum yfir í Buster Keaton, Charlie Chaplin og Jacques Tati. Allt sem fær mann til að stoppa og hugsa "Hey geðveikt" Ég hef mikið dálæti á alls kyns fróðleik og upplýsingum sem aðrir myndu kannski kalla gagnslausann. T.d. eru breskir þættir sem heita QI. Þetta er spurningaþáttur og maður fær fleiri stig eftir því sem svörin eru áhugaverðari en mínus stig fyrir mjög augljós svör. Enda stendur QI fyrir Quite Interesting. Svo er til síða á internetinu sem heitir Stumbleupon.com Hún virkar þannig að þú ýtir á takka og síðan finnur aðrar síður fyrir þig sem þú gætir haft áhuga á. Það er frábært! Þar er maður alltaf að rekast á eitthvað sem vekur áhuga manns og gefur manni innblástur."
Er leiklist á Íslandi hark?
„Ég myndi kannski ekki kalla það hark. Mér finnst hark vera svo neikvætt. Ef þú vinnur við eitthvað sem þú brennur fyrir og samsvarar ástríðu manns þá er það bara skemmtileg vinna að koma sér á framfæri og búa til leikhús."
Hvað viltu segja við þá sem dreymir um að verða leikarar?
„Bara að fylgja hjartanu og láta engan, alls engan segja sér annað. Notaðu heilann til að fylgja hjartanu. Maður á alltaf að fylgja draumum sínum, ALLTAF!"
Eitthvað sem þú hefðir viljað gera öðruvísi á þessum stutta ferli?
„Nei alls ekki."
Hvernig leggst frumsýningin í þig í kvöld?
„Hún leggst rosalega vel í mig. Andrúmsloftið er og hefur verið rosalega gott í hópnum þannig að tilfinningin er rosalega góð."
Fyrsta gagnrýni á verk Benna er jákvæð og lesa má um hana hér.