Fjölgun ferðamanna á Suðurnesjum var sú mesta á öllu landinu á milli áranna 2010 og 2011. Spár sýna enn frekari fjölgun ferðamanna á Íslandi. Ferðaþjónustan á Suðurnesjum vill hlutdeild í þeirri þróun. Til þess þarf ferðaþjónustun að standa sterk saman og mæta aukningunni á faglegan hátt. Markaðsstofa Suðurnesja og Atvinnuþróunarfélagið Heklan boða alla sem að ferðaþjónustu koma til fundar í Eldey - þróunarsetur, Grænásabraut 506, Ásbrú - miðvikudaginn 23. maí kl. 16.
Fundurinn er upplýsingafundur fyrir ykkur. Vilt þú kynna þína starfsemi eða þjónustu fyrir öðrum sem eru í ferðaþjónustu á Suðurnesjum eða viltu koma til að kynna þér hvað aðrir hafa upp á að bjóða. Ferðaþjónustan er stækkandi á Íslandi og við hér á Suðurnesjum ætlum okkur hlutdeild í þeirri köku. Til að svo geti orðið þurfum við að vinna saman, tala saman og upplýsa hvert annað um þau verkefni sem eru í gangi á Suðurnesjum. Við þurfum að vera meðvituð um að allir veiti ferðafólki góða og faglega þjónustu. Þannig fjölgum við ferðamönnum á Suðurnesjum og atvinnutækifærum í ferðaþjónustunni - ÞAÐ ERU HAGSMUNIR ALLRA.
Við viljum upplýsa hvert annað m.a. um: afþreyingu, þjónustu, samgöngur, gönguleiðir, veitingastaði, söfn, sýningar, gistingu og hvað eina í okkar samfélagi sem ferðamenn hafa áhuga á og í boði er á svæðinu. Mjög mikilvægt er að starfsfólk hótela, gistihúsa, veitingastaða, bensínstöðva, safna, sam-gangna og miklu fleiri komi á fundinn og kynni sín verkefni og kynni sér hvað er í boði fyrir ferðamenn. Markaðsstofa Suðurnesja kynnir á fundinum sameiginlegt markaðsátak markaðsstofa landshlutanna, Ferðamálastofu og Ferðaþjónustu bænda. Hvaða tækifæri felast í átakinu fyrir Suðurnes?
Með þessu móti geta aðilar sem þjónusta ferðamenn veitt betri þjónustu og verið upplýstari og betur í stakk búnir til að leiðbeina og vísa ferðamönnum áfram veginn á Suðurnesjum.
Þeir aðilar sem vilja kynna þjónustu sína látið vita á netfangið info@visitreykjanes.is sími 421-3520 eða heklan@heklan.is sími 420-3288. Hver aðili fær 5 mín. til að kynna sína starfsemi. Tökum þátt í þessum fundi og sýnum að með samtakamætti getum við fjölgað ferðamönnum og aukið atvinnu á sviði ferðaþjónustu á Suðurnesjum.