Boðið verður upp á fjölbreytta dagskrá fyrir börn á aldrinum 6-12 ára (fædd 2006 og fyrr) þar sem viðfangsefnin eru skemmtileg og uppbyggjandi. Mikið er lagt upp úr útiveru. Þátttakendur eiga að hafa með sér hollt og gott nesti og í samræmi við lengd viðveru.
Það er ekki leyfilegt að senda barn með gos og sælgæti í nesti. Nauðsynlegt er að vera í góðum skóm. Réttur útbúnaður stuðlar að aukinni vellíðan. Gott er að vera með regnfatnað og aukaföt í tösku. Dagskrá hvers námskeiðs er fjölbreytt. Það verður föndrað, sungið, leikið, farið í heimsóknir, spilað, farið í dagsferð, sundferð og margt fleira. Engin tvö námskeið eru eins. Hvert námskeið stendur yfir í tvær vikur.
Námskeið 1: 06. júní - til 15. júní Námskeið 2: 18. júní - 29. júní
Námskeið 3: 02. júlí - 13. júlí Námskeið 4: 16. júlí - 27. júlí
Miðað er við að börnin séu í virkri dagskrá frá kl. 09:00 - 16:00. Hægt er að kaupa gæslu frá kl. 08:00 - 09:00 og frá kl. 16:00 - 17:00.
Hægt er að velja um mismunandi dvalartíma en gengið út frá því að hann sé sami allt það námskeið sem er valið:
Frá kl. 08:00 - 12:00 Frá kl. 08:00 - 16:00 Frá kl. 08:00 - 17:00
Frá kl. 09:00 - 12:00 Frá kl. 09:00 - 16:00 Frá kl. 09:00 - 17:00
Frá kl. 13:00 - 16:00 Frá kl. 13:00 - 17:00
Vakin er athygli á því að á hverju námskeiði verður farin ein dagsferð og þá þarf taka tillit til þess.
Leikjanámskeiðin munu hafa aðsetur í skólaseli Hópsskóla.
Gjaldskrá:
Námskeið 1 - átta virkir dagar:
Verð fyrir 7 klst. pr. dag: Frá kl. 09:00-16:00 - 7.600 kr.
Verð fyrir 3 klst. pr. dag: Frá kl. 09:00 - 12:00 eða frá kl. 13:00 - 16:00 - 4.800 kr.
Verð fyrir viðbótarstund í 8 daga kl. 08:00-09:00 - 1.600 kr.
Verð fyrir viðbótarstund í 8 daga kl. 16:00-17:00 - 1.600 kr.
Námskeið 2, 3 og 4 -tíu virkir dagar
Verð fyrir 7 klst. pr. dag: Frá kl. 09:00-16:00 - 9.500 kr.
Verð fyrir 3 klst. pr. dag: Frá kl. 09:00 - 12:00 eða frá kl. 13:00 - 16:00 - 6.000 kr.
Verð fyrir viðbótarstund í 10 daga kl. 08:00-09:00 - 2.000 kr.
Verð fyrir viðbótarstund í 10 daga kl. 16:00-17:00 - 2.000 kr.
Vinsamlegast athugið að ef skráður þátttakandi hættir við að sitja námskeið, en hefur ekki tilkynnt forföll með formlegum hætti til umsjónamanns námskeiðsins á miðvikudegi fyrir upphaf námskeiðs þá mun námskeiðsgjald vera innheimt að fullu.
Tekið er við skráningum á bæjarskrifstofunni. Umsóknareyðublöð má nálgast hér.
Yfirumsjón með leikjanámskeiðunum hefur Kristinn J. Reimarsson sviðssjóri frístunda- og menningarsviðs. Leiðbeinendur verða:Berglind Magnúsdóttir og Guðrún Bentína Frímannsdóttir. Aðstoðarleiðbeinendur ef með þarf verða nemendur úr vinnuskólanum.