MSS í Grindavík hélt frábært námskeið sl. mánudagskvöld og komust færri að en vildu. Námskeiðið bar yfirskriftina Nýju fötin keisarans og gekk út á að kenna sérstaka tækni til að endurnýta alls kyns umbúðir svo sem kaffipoka, snakkpoka eða sælgætisbréf og gera úr þeim fallega fylgihluti.
Hér má sjá myndir frá þessu námskeiði sem sannarlega sló í gegn!