Áhugasamir aðilar ætla að starfrækja útvarpsstöð í tengslum við Sjóarann síkáta núna í maí. Undirbúningsfundur verður miðvikudaginn 9. maí kl. 19:00 í Þrumunni (Kvennó). Hefur þú áhuga á dagskrárgerð í útvarpi? Viltu láta rödd þína heyrast? Mættu þá endilega á fundinn og vertu með frá byrjun.
Í framhaldi af því hversu vel tókst til í þemadögum grunnskólans með útvarpið kviknaði hjá hugi að vera aftur með útvarp í tengslum við Sjóarann síkáta og eru áhugasamir hvattir til þess að mæta á fundinn.