Um daginn sögðum við frá fallhlífastökkvurum í Grindavík sem lesa má um hér. Réttara er að tala um svifvængjaflug en þetta er íþrótt sem á vaxandi vinsældum að fagna. Að sögn Anítu Hafdsíar Björnsdóttur fljúga þau mikið í Herdísarvík og svo í Festarfjalli sem þykir með magnaðri flugstöðum landsins. Samúel Alexanderson flugkappi tók skemmtilegt myndband frá þessari flugferð þeirra í Herdísarvík og Festarfjall sem má sjá hér að neðan.