Ákvörðun um hreinsunardaga 2012 lágu fyrir fundi bæjarstjórnar í gærkvöldi. Skipulags- og umhverfisnefnd tók jákvætt í tillögu sviðsstjóra um framkvæmd árlegra hreinsunardaga Grindavíkurbæjar fyrir sjóarann Síkáta.
Tillagan felur í sér að hreinsunardagar verði haldnir 26.-28. maí nk. og að sett verði á fót tímabundið gámaplan um sömu helgi við gamla steypustöðvarplanið til losunar á járni, timbri og jarðvegi.
„Tillaga
Bæjarstjórn tekur undir áskorun skipulags- og umhverfisnefndar um að íbúar og fyrirtæki í Grindavík hreinsi til í kringum um sig og verði öðrum til fyrirmyndir í umgengni sinni á sama tíma.
Bæjarstjórn felur sviðsstjóra skipulags- og umhverfissviðs að gera kostnaðaráætlun vegna verkefnisins og leggja fyrir bæjarráð.“