Stærsta sjávarútvegssýning heims var sett í Brüssel í gær 24. apríl og stendur til 26. apríl. Alls taka um 30 íslensk fyrirtæki þátt í sýningunni sem helguð er kynningu og sölu á sjávarafurðum. Vísir hf. í Grindavík er á meðal þeirra fyrirtækja sem taka þátt í sjávarútvegssýningunni.
Sýningarnar eru tvær, annars vegar European Seafood Exposition sem snýr að kynningu og sölu á sjávarafurðum og hins vegar Seafood Processing Europe sem er ætluð fyrirtækjum sem framleiða vinnslutæki eða bjóða upp á þjónustu tengda útflutningi á sjávarafurðum, er fram kemur á vef Íslandsstofu sem hefur skipulagt þátttöku íslenskra fyrirtækja á sýningunni.
Vísir er eitt þeirra fyrirtækja sem taka þátt í sýningunni þar sem starfsemi og afurðir fyrirtækisins eru kynntar. Áætlað er að um 30.000 fulltrúar fyrirækja sæki sýninguna heim. Af því tilefni var tækifærið nýtt og nýr kynningarbæklingur fyrirtækisins kynntur. Bæklinginn má nálgast hér.