Á starfsmannafundi í dag kynnti skólastjóri fyrirhugaðar breytingar sem verða á starfsmannahaldi og hagræðingu í skólastarfinu fyrir næsta skólaár.
Kom þar fram að segja þarf upp starfsfólki úr röðum stuðningsfulltrúa og skólaliða ásamt samdrætti á öðrum sviðum.
Margt er óbreytt á milli ára og aukið er við úthlutun vegna forfallakennslu.
Rammafjárveitingar miðast við fjárhagsáætlun bæjarins sem áður hefur verið kynnt.
Hins vegar finnst starfsfólki skólans hagræðingin ganga allt of langt og sendi frá sér svohljóðandi ályktun í lok fundar:
Ályktun frá starfsmannafundi Grunnskóla Grindavíkur 23. apríl 2012
Fundur starfsmanna Grunnskóla Grindavíkur, haldinn 23. apríl 2012 mótmælir harðlega fyrirhuguðum uppsögnum og skerðingu á stöðugildum fyrir
skólaárið 2012 - 2013.
Starfsmannafundur vill vekja athygli á því að á sama tíma og verið er að fara út í kostnaðarsamar framkvæmdir í bænum er vegið að einni af grunnstoðum samfélagsins, Grunnskóla Grindavíkur, með uppsögnum á starfsfólki og skertri þjónustu við nemendur.
Fundurinn telur tímasetningu aðgerða ámælisverða nú þegar skólaárinu er að ljúka. Einnig að forsvarsmenn bæjarins skuli ekki sjá sóma sinn í að kynna þessar aðgerðir fyrir starfsfólki skólans.