Stór dagur fyrir Brimfaxa

  • Fréttir
  • 19. apríl 2012

Það var sannarlega stór stund fyrir Hestamannafélagið Brimfaxa í dag, sumardaginn fyrsta, þegar skrifað var formlega undir samning við Grindavíkurbæ um byggingu reiðhallar félagsins og í kjölfarið var fyrsta skóflustunga að reiðhöllinni tekin.

Grindavíkurbær leggur 50 milljónir króna í verkefnið sem gerir Brimfaxa kleift að byggja höllina sem er um 26 metrar á lengd og 70 metrar á breidd. Reiðhöllin rís í hestamannahverfinu í Hópsheiði þar sem nú er reiðhringur og er áætlað að hún verði tilbúin í haust.

Efsta mynd: Hilmar Knútsson formaður Brimfaxa, Róbert Ragnarsson bæjarstjóri og Hermann Ólafsson ábyrgðarmaður byggingaframkvæmdanna taka fyrstu skóflustunguna að reiðhöllinni.

Hilmar, Hermann, Róbert og Gísli á Hraun sem sér um jarðvinnuna undirrita samninga.

Ánægðir fjórmenningar að lokinni undirskrift.

Eftir undirskrift og skóflustungu var riðið að höfuðstöðvum Stakkavíkur þar sem boðið var upp á kaffi og meðlæti.


Deildu ţessari frétt

AĐRAR FRÉTTIR

Fréttir / 10. apríl 2024

NIE ZAPOMINAJMY O OKAZJACH DO RADOSCI

Fréttir / 9. apríl 2024

Pistill bćjarstjórnar 9. apríl

Fréttir / 5. apríl 2024

Zimna woda w Grindavík

Fréttir / 3. apríl 2024

Höfum gleđina međ!

Fréttir / 2. apríl 2024

Ađstođ viđ fjármál

Fréttir / 27. mars 2024

Loftgćđi og mengun