Vorboðinn ljúfi - lóan? Eða var það kannski hvít jörð í Grindavík á síðasta degi vetrar. Það var einmitt hvít jörð sem heilsaði árisulum íbúum Grindavíkur og lokadagur þemadaga framundan. Það rættist þó úr veðri og þegar nemendur Grunnskólans komu saman í Sundlaug Grindavíkur var nánast orðin alauð jörð og sólin farin að hita. Tilefnið var sundlaugafjör og grill til að ljúka þemadögum. Það var samdóma álit að þeir hefðu heppnast vel. Mikil fjölbreytni í vali og flestir fengu að velja það sem hugurinn stóð til.
Nokkrum nemendum Hópsskóla tókst þó að hnoða saman einum litlum snjókarli, svona til að kveðja veturinn. Hann stóð þó ekki lengi og bráðnaði í hitanum. Það var þó enn nóg að gera á öllum stöðvum. Bakað í Hópsskóla, útivera og íþróttir í boði. Nemendaráð sá um tónlist við sundlaugina og „blastaði" þá sem mættu í sundið og gæddu sér á grilluðum pylsum. Fín lok á góðum dögum.
Tíðindamaður heimasíðunnar tók Pálma Ingólfsson skólastjóra tali um gildi þemadaganna. „Nú þegar þemadögum í Grunnskóla Grindavíkur er lokið held ég öllum sé ljóst að vel hafi tekist til. Einhverjir eru því miður á því að börnin læri minna þegar námið er brotið upp með þessum hætti. Þeir sem fylgst hafa með nemendum þessa daga geta aldeilis sagt að þarna fer fram nám sem nemendur muna eftir. Þemadagarnir eru vissulega óhefðbundnir dagar þar sem stundataflan er brotin upp og nemendur fá meira frelsi í rými skólans og um nánasta umhverfi. Unnið er að margvíslegum verkefnum sem nemendur sjálfir hafa valið sig í. Það eitt gerir starfið áhugavert og skemmtilegt fyrir hvern og einn. Fjölbreytnin er í fyrirrúmi. Nemendur sýna yfirleitt sínar bestu hliðar í þemavinnu þar sem hæfileikar, árræðni og metnaður þeirra kemur berlega í ljós" sagði Pálmi.
Hann vildi nota tækifærið til að koma þökkum til starfsfólks skólans fyrir allan undirbúning og vinnu á þessum þemadögum og þá sérstaklega stýrihópi sem sá um að skipulag væri í lagi. Öllum sem komu að útvarpinu eigi heiður skilinn fyrir gott framtak og jákvæða athygli. Allir voru með sól í hjarta og mikilvægt að muna að nám af þessu tagi skili mjög miklu til nemenda þegar svona vel takist til. Hann vill óska nemendum og starfsfólki til hamingju með frábæra þemadaga .
„Nemendum, foreldrum og öðrum Grindvíkingum óska ég gleðilegs sumars og minni jafnframt á víðavangshlaupið á sumardaginn fyrsta," sagði Pálmi að lokum.