Þemadagar í Grunnskóla Grindavíkur standa nú yfir en þá er hefðbundin kennsla brotin upp með ýmsu skemmtilegu. Í Hópsskóla þar sem 1., 2. og 3. bekkur eru, hefur sannarlega verið líf í tuskunum. Þar er boðið upp á um íþróttastöð, tilraunir, spil og slökun, listir, leiklist, bakstur, fjöruferð, útileikir og dans.
„Það þurfa allir á þessu uppbroti að halda. Veðrið leikur við okkur og krakkarnir fóru í morgun í fjöruferð og komu aftur með sólskinsbros. Allir eru sælir og glaðir og þetta hefur tekist ljómandi vel," sagði Ásrún H. Kristinsdóttir deildarstjóri.
Hér má sjá nokkrar skemmtilegar myndir. Á þeirri efstu má sjá tilraunahópinn að störfum en þarna sprautast gos úr kókplastflösku.