Vinnuskóli Grindavíkur verður starfandi í sumar fyrir ungmenni fædd 1998, 1997, 1996 og 1995. Pétur R. Guðmundsson hefur verið ráðinn verkstjóri vinnuskólans sumarið 2012. Á síðasta ári var fyrirkomulag vinnunnar endurskoðað frá því sem verið hefur á síðustu árum og var bæði vinnutími skertur og laun lækkuð. Laun mun verða óbreytt frá síðasta sumri, nema hjá elsta árgangi, en vinnustundum hefur verið fjölgað frá síðasta sumri en mismikið eftir árgöngum. Fyrirkomulag verður sem hér segir:
14 ára, úr 8. bekk:
Tímabil: 4. - 28. júní. Fjöldi daga: 16
Starfstími: Mánudaga til fimmtudaga kl. 08:30 - 12:00. 14 stundir á viku í samtals fjórar vikur.
Laun: Kr. 405,- á tímann með orlofi.
Helstu verkefni: Þrif, rakstur og gróður umhirða.
15 ára, úr 9. bekk:
Tímabil: 4. júní - 12. júlí: Fjöldi daga: 24
Starfstími: Fyrstu þrjár vikurnar: Mánudaga til fimmtudaga kl.08:30-12:00 og 13:00-15:00.
Síðustu þrjár vikurnar mánudaga - fimmtudaga kl. 08:30 - 12:00.
22 stundir á viku í þrjár vikur og 14 stundir á viku í þrjár vikur.
Laun: Kr. 495,- á tímann með orlofi.
Helstu verkefni: Gróðursetning, áburðargjöf, þrif, sláttur, rakstur og gróður umhirða í görðum ellilífeyrisþega.
16 ára, úr 10. bekk:
Tímabil: 25. júní - 17. ágúst. Fjöldi daga: 34
Starfstími: Mánudaga til fimmtudaga kl. 08:30-12:00 og 13:00-15:00 og föstudaga kl. 08:30-12:00.
25,5 stundir á viku, samtals í sjö vikur.
Laun: Kr. 585,- á tímann með orlofi.
Helstu verkefni: Sláttur,rakstur og létt viðhald á lóðum. Gróðursetning, áburðargjöf, hreinsun, málun og önnur tilfallandi verkefni.
17 ára, úr 1. bekk framhaldsskóla:
Tímabil: 4. júní - 17. ágúst. Fjöldi daga: 49
Starfstími: Mánudaga til fimmtudaga kl.08.30-12.00 og 13.00-15.00 og föstudaga kl. 08.30-12.00.
25,5 stundir á viku í tíu vikur.
Laun: Kr. 1.027,- á tímann með orlofi.
Helstu verkefni: Sláttur,rakstur og létt viðhald á lóðum. Gróðursetning, áburðargjöf, hreinsun, málun og önnur tilfallandi verkefni.
Ýmis aðstoðarstörf eru í boði fyrir nemendur í tveimur elstu árgöngunum og verða óskir um slík störf teknar til athugunar hjá verkstjóra vinnuskóla. Sjá nánar á umsóknareyðublaði.
Sérstakir kynningarfundir um starfsemi Vinnuskóla Grindavikur verða haldnir í Grunnskóla Grindavíkur sem hér segir:
- Miðvikudaginn 30. maí kl. 14:00 fyrir nemendur fædd 1998 og 1997. (14 og 15 ára). Foreldrar/forráðamenn velkomnir með á fundinn.
- Miðvikudaginn 30. maí kl. 15:00 fyrir nemendur fædd 1996 og 1995 (16 og 17 ára).
Á fundunum mun Þorgerður Guðmundsdóttir launafulltrúi fara yfir laun- og launakjör ásamt því að fara yfir helstu upplýsingar sem koma fram á launaseðli.
Litið er svo á að ef ungmenni mætir ekki á fundinn eða tilkynnir ekki forföll muni hann ekki þiggja vinnu við Vinnuskólann.
Fylla skal út rafræna umsókn á heimasíðu Grindavíkurbæjar, www.grindavik.is/eydublod.
Umsóknareyðublað er fyllt út í gegnum NETSKIL og er notast við veflykill Ríkisskattstjóra og þ.a.l. kennitölu foreldris/forráðamanns til að skrá sig inn. Einnig er hægt að nota debet-kort með rafrænum skilríkjum.
Síðasti dagur umsókna er föstudagurinn 11. maí n.k.
ATH. Nemendur fædd 1995 og 1996 þurfa að skila inn skattkorti til launafulltrúa Grindavíkurbæjar.
Allar nánari upplýsingar veitir undirritaður. Netfang: kreim@grindavik.is
Kristinn J. Reimarsson
sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs.