Grindavík á fjóra fulltrúa í U15 ára landsliði Íslands í körfubolta drengja og stúlkna sem taka þátt í alþjóðlegu móti í byrjun júní. Ingibjörg Sigurðardóttir er í U15 stúlkna en hún er nú þessa dagana að spila með U17 ára landsliðinu í knattspyrnu en hún er mikið efni í báðum þessum íþróttagreinum.
Þrír drengir eru í U15, þeir Aðalsteinn Már Pétursson, Hilmir Kristjánsson og Kristófer Rúnar Ólafsson.