Grillađ fyrir leikinn í kvöld á Salthúsinu

  • Íţróttafréttir
  • 16. apríl 2012

Stuðningsmenn Grindavíkur eru hvattir til þess að hita upp fyrir stórleikinn gegn Stjörnunni í kvöld með því að mæta í Salthúsið fyrir leik en húsið opnar kl. 17:30. Þar mun stuðningsmannahópur körfuboltans í samstarfi við Láka í Salthúsinu grilla hamborgara sem seldir verða á 700 kr.

Einar Hannes og Jón Gauti verða grillmeistarar og byrja þeir að grilla kl. 17:30 og geta stuðningsmenn Grindavíkurliðsins gætt sér að fimm stjörnu hamborgurum inni á Salthúsinu. Þar verður jafnframt hitað upp fyrir leikinn með baráttusöngvum. Stuðningsmenn Grindavíkur eru hvattir til þess að standa saman í þeirri baráttu sem er framundan og mæta í upphitunina. (Fréttatilkynning)


Deildu ţessari frétt

AĐRAR FRÉTTIR

Fréttir / 5. apríl 2024

Zimna woda w Grindavík

Fréttir / 3. apríl 2024

Hlúum ađ heilsunni. Ókeypis kostir

Fréttir / 3. apríl 2024

Höfum gleđina međ!

Fréttir / 2. apríl 2024

Ađstođ viđ fjármál