Starfsmannaatriði unglingastigs var á hvíta tjaldinu í ár, þeir endurgerðu rokkmyndbandið Rollin með hljómsveitinni Limp Bizkit við mikinn fögnuð nemenda. Það sem vakti athygli glöggra áhorfenda var hversu vel myndbandið var gert. Gamall nemandi Grunnskóla Grindavíkur, Björgvin Ottósson, tók upp myndbandið, klippti það og undirbjó allar tökur. Það var svo frumsýnt á árshátíð unglingastigs, 20. mars síðastliðinn.
Björgvin Ottósson er búinn með kvikmyndaskóla Íslands og hefur verið að semja stuttmynda-handrit ásamt því að vinna fjölbreytt verkefni tengd sínu námi. Ritstjórn heimasíðu skólans ræddi við Björgvin eftir vel heppnaða sýningu myndbandsins.
Hvernig stóð til að þú tókst þetta að þér?
„ Ástæðan er í rauninni þríþætt; mér finnst ótrúlega gaman að geta gefið af mér fyrir gamla skólann minn, æfingin skapar meistarann og þetta er góð æfing fyrir mig. Svo fékk ég það í vöggugjöf frá móður minni að finnast gaman að fíflast. Það þarf eiginlega ekkert að suða í mér þegar fíflalæti eru annars vegar".
Fannst þér gaman að vinna myndbandið?
„Þetta var mjög skemmtilegt, það voru líka allir tilbúnir að lána tæki og tól hérna í Grindavík, hvort sem það voru Buggy bílar, atvinnuhúsnæði, lyftarar eða jeppar. Það sem var samt skemmtilegast var að sjá viðbrögðin hjá krökkunum, þau voru ótrúlega ánægð með þetta."
Vinnan við myndbandið tók nokkra daga og eru starfsmenn unglingastigs gríðarlega þakklátir fyrir framlag Björgvins. Meðfylgjandi myndir eru úr myndbandinu.