Eldhamar ehf. óskaði eftir undanþágu til byggingar hótels á þjónustureit athafnasvæðis við Hafnargötu 26, við hlið áhaldahússins. Skipulags- og umhverfisnefnd lagði til að erindið verði samþykkt. Bæjarstjórn tók samþykkt skipulags- og umhverfisnefndar fyrir á fundinum og samþykkti hana einnig.