Þorbjörn hf. Grindavík er í 7. sæti yfir stærstu útgerðir landsins, sé tekið mið af heildarþorskígildi fyrirtækja. Þorbjörn hf. er með rétt um 15.500 þorskígildistonn en Vísir hf. í Grindavík er í 11. sæti með um 11.500. Samanlagt eru þessi tvö fyrirtæki með um 7,37% kvótans.
Þá er Gjögur í 15.sæti með 6.100 þorskígildistonn og Stakkavík í 22. sæti með rétt rúm 3000.
Listann í heild sinni má sjá hér.