Dagskrá menningarviku laugardaginn 24. mars

  • Fréttir
  • 24. mars 2012

Þá er komið að næst síðasta degi menningarvikunnar. Um helgina er jafnframt Safnahelgi á Suðurnesjum og er ókeypis á öll söfn, m.a. á sýningarnar tvær í Kvikunni. Í dag er mikið um að vera í Kvikunni, m.a. er barnadagskrá, sagnastund og tónleikar með grindvískum hljómsveitum. Dagskráin er eftirfarandi:

Minja- og myndasýning Þorbjarnar hf. Í gömlu fiskmóttökulúgunum við gamla salthúsið, sem nú hýsir Veiðafæraþjónustuna ehf. við Ægisgötu (Garðvegs megin) eru átta gluggar og einn gluggi að Hafnargötu
12, þar sem skrifstofa fyrirtækisins er. Í þessum gluggum er sýning á gömlum munum og myndum, sem safnast hafa upp hjá fyrirtækinu í gegnum árin bæði tengdum fiskveiðum og fiskvinnslu. Á flettiskjám eru
sýndar gamlar myndir frá starfsemi fyrirtækisins.

Lífið er saltfiskur, saltfiskhelgi MSM og Grindavíkurbæjar, saltfiskuppskriftarkeppni, saltfiskveisla, saltfisksýning. Félagið Matur-saga-menning (MSM) og Grindavíkurbær standa fyrir uppskriftakeppni
um besta saltfiskréttinn 2012. Matreiðslumennirnir Sigurvin Gunnarsson og Friðrik V. Karlsson meðlimir í
MSM velja fimm uppskriftir. Hægt er að senda uppskriftir í tölvupósti til sigurvingunnars@simnet.is í síðasta lagi 25. mars. Vinningsuppskriftir verða valdar í lok Menningarviku Grindavíkur 17.-24. mars, sjá nánar um fjölbreytta dagskrá á www.grindavik.is
1. verðlaun eru kr. 30.000, 2. verðlaun kr. 20.000, 3. verðlaun kr. 10.000, 4. verðlaun kr. 5.000 og 5. verðlaun kr. 5.000. Vinningsuppskriftir verða sýnilegar á vefsíðum www.matarsetur.is og
www.grindavik.is. Í Menningarviku mun Salthúsið í Grindavík bjóða upp á saltfiskrétti
sjá www.salthusid.is

Kl. 10:00 - 16:00 Handverksfélagið Greip Skólabraut 8. Opið hús.

Kl. 10:00 - 22:00 Northern Light Inn. Tolli með málverkasýningu. Einnig verður ljósmyndasýning þar sem myndir birtast á stóru tjaldi. Myndefnið er Ísland og eru teknar af ljósmyndaranum Brooks Walker.

Kl. 11:00 - 23:00 Bryggjan: Útgerðar- og sjómannasýning með munum og myndum

Kl. 13:00 - 16:00 Verslunarmiðstöðin 2. hæð - Málverkasýning. Opin sýning á málverkum Pálmars Guðmundssonar kennara og frístundamálara.

Kl. 13:00 - 16:00 Bókasafn Grindavíkur. Brúðusýning Rúnu Gísladóttur myndlistarmanns og kennara. 
Kynning á Ljósmyndasafni Grindavíkur - hægt að sitja við tölvu, skoða myndir og senda inn upplýsingar um þær.

Kl. 11:00 - 17:00 - Kvikan. Í tilefni af Safnahelgi á Suðurnesjum verður frítt inn á báðar sýningar Kvikunnar, Saltfisksýninguna og Jarðorkusýninguna. Kaffihús opið á sama tíma. Myndband frá leikskólanum Laut þar sem sýnt er frá starfinu í skólanum sýnt af og til alla helgina.

Kl. 11:00 - 17:00 - Kvikan, ljósmyndasýningin - Góðan daginn, Grindvíkingur! Ljósmyndasýning
fjögurra áhugaljósmyndara í Grindavík. Flestar myndirnar eru teknar í grindvískri náttúru síðustu árin.
Haraldur H. Hjálmarsson, Eyjólfur Vilbergsson, Arnfinnur Antonsson og Valgerður Valmundsdóttir.

Kl. 11:30 - Kvikan: Frumsýnt myndband sem börn af leikskólanum Króki hafa unnið í samstarfi við foreldra og aðstandendur barnanna. Unnið var með lagið Suðurnesjamenn eftir Kaldalóns. Lagið er sungið
og leikið með leikmunum sem börnin sköpuðu sjálf. Verður myndbandið sýnt af og til í Kvikunni um helgina.

Kl. 13:00 - 18:00 Listastofa Helgu. Opin vinnustofa að Vörðusundi 1. Allir velkomnir, léttar veitingar og
notaleg stemming 

Kl. 14:00 Kvikan: Barnadagskrá. Pollapönk, GRAL-Horn á höfði, Rapparinn Ari Auðunn, Strákabandið Pabbastrákar.

Kl. 16:00 Kvikan. Sagnastund - Brynjúlfur Jónsson frá Minna-Núpi . Brynjúlfur Jónsson safnaði gömlum sögnum á Suðurnesjum og rannsakaði sögustaði og minjar í Grindavík er hann var þar á vertíð seint á 19. öld. Guðlaug Guðmundsdóttir bókmenntafræðingur segir sögur af forföður sínum. Sigrún Jónsd. Franklín menningarmiðlari kynnir sagnir og minjar sem hann skráði og tengjast Grindavík.

Kl. 20:00 Kvikan: Grindvísku hljómsveitirnar Jón, Páll og pollarnir og Lógos skemmta.
Aðgangur ókeypis. Veitingasala. Hljómsveitina Lógos skipa:
Kristjón Grétarsson, Jóhann Grétarsson, Gunnar Böðvarsson, Margrét Einarsdóttir, Sigurbjörg
Hilmarsdóttir, Sirrý Erlingsdóttir, Jóna Rúna Erlingsdóttir, Svanhvít Daðey Pálsdóttir, Eva Björg Sigurðardóttir og Stefanía Ósk Margeirsdóttir. Hljómsveitin leikur létt dægurlög í bland við gospel.

Hljómsveitina Jón, Páll og pollarnir skipa: Jón Örn Sigurðsson, Páll Jóhannesson, Viktor Gunnarsson, Rúnar


Deildu ţessari frétt

AĐRAR FRÉTTIR

Fréttir / 9. apríl 2024

Pistill bćjarstjórnar 9. apríl

Fréttir / 5. apríl 2024

Zimna woda w Grindavík

Fréttir / 3. apríl 2024

Hlúum ađ heilsunni. Ókeypis kostir