Í gær var upplestur og tónspil í Miðgarði þar sem nemendur úr 7. bekk og tónlistarskólanum komu í heimsókn í tilefni menningarviku. Þá mætti einnig Árni Johnsen alþingismaður með gítarinn og hélt uppi fjöldasöng.
Nemendur í 7. bekk voru með upplestur fyrir eldri borgara í Grindavík auk þess sem nemendur úr tónlistarskólanum léku nokkur lög.
Mér má sjá nokkrar myndir frá fjörinu í Miðgarði.
Árni Johnsen hélt uppi stuðinu í Miðgarði.