Slagverksdeild tónlistarskólans var í morgun á ferðinni um bæinn og heimsótti leikskólanna Krók og Laut. Trommararnir Andri Hrafn Vilhelmsson, Leon Ingi Stefánsson og Vilberg Elí Dagbjartsson sýndu listir sínar við frábærar undirtektir yngstu kynslóðarinnar.
Það var vel tekið á móti okkur á leikskólunum í morgun og ekki vantaði áhugasama áhorfendur!
Andri Hrafn einbeittur á Króki
Vilberg Elí
Krakkarnir á Laut að koma sér fyrir
Leon Ingi að lemja húðirnar
Andri Hrafn
Vilberg Elí á fullu!
Tónlistarskólinn þakkar Laut og Krók innilega fyrir skemmtilega stund og trommurunum þremur fyrir glæsilega frammistöðu!