Guðbergur Bergsson, bæjarsýning á leikriti grunnskólans, Gissur Sigurðsson fréttamaður og líf og fjör í verslunarmiðstöðinni er á meðal þess sem boðið er upp á í menningarvikunni í dag. Auk þess er fjölmargt annað um að vera. Dagskrá fimmtudagsins 22. mars er þessi:
Fimmtudagur 22. mars:
Kl. 07:00 - Pottaspjall. Bryndís Gunnlaugsdóttir bæjarfulltrúi mætir í heitu pottana í Sundlaug Grindavíkur og spjallar við gesti um málefni líðandi stundar.
Kl. 08:00 - 18:00 Verslunarmiðstöðin 2. hæð - Málverkasýning. Opin sýning á málverkum Pálmars Guðmundssonar kennara og frístundamálara.
Kl. 09:30 - Leikskólinn Krókur: Nemendur Tónlistarskóla Grindvíkur leika nokkur lög fyrir leikskólabörnin.
Kl. 10:00 - Leikskólinn Laut: Nemendur Tónlistarskóla Grindavíkur leika nokkur lög fyrir leikskólabörnin.
Kl. 10:00 - 22:00 Aðalbraut: Vettlingasýning - Sýndur verður fjöldinn allur af heimaprjónuðum og hekluðum vettlingum frá grindvískum prjónakonum.
Kl. 10:00 - 22:00 Northern Light Inn. Tolli með málverkasýningu. Einnig verður ljósmyndasýning þar sem myndir birtast á stóru tjaldi. Myndefnið er Ísland og eru teknar af ljósmyndaranum Brooks Walker.
Kl. 11:00 - 18:00 Bókasafn Grindavíkur. Brúðusýning
Rúnu Gísladóttur myndlistarmanns og kennara. Kynning á Ljósmyndasafni Grindavíkur - hægt að sitja við tölvu, skoða myndir og senda inn upplýsingar um þær.
Kl. 12:30 - 14:00 Opið hús í fjölsmiðju Grunnskóla Grindavíkur. Starfsemin kynnt og kaffiveitingar. Mósaíkverk eftir nemendur afhjúpað. Allir velkomnir.
Kl. 14:00-15:00 krakkar úr Tónlistarskólanum leika á gítar í Landsbankanum.
Kl. 17:00 - Víðihlíð. Tónfundur tónlistarskólans.
Kl. 20:00 – Leikrit grunnskólans (bæjarsýning). SAGAN SEGIR – Gamanleikrit sem fjallar um hóp af krökkum sem fara í Þórsmerkurferð og slúðrið sem verður eftir ferðina. Dans og söngatriði fléttast inn í leikritið. Leikstjóri: Guðmundur Jónas Haraldsson. Helstu hlutverk: Lára Lind Jakobsdóttir, Nína María Ragnarsdóttir, Íris Ósk Hallgrímsdóttir, Daníel Jónasson, Valgerður María Þorsteinsdóttir og Katla Marín Þormarsdóttir. Leikritið er samið af unglingunum sjálfum. Textar: Valgerður og Lára Lind. Danshöfundar: Valgerður og Lára Lind.
Kl. 19:30 – Miðstöð Símenntunar – Víkurbraut 56 (Húsi Landsbankans). Opið hús, m.a. mætir fréttahaukurinn Gissur Sigurðsson og mun ræða við gesti undir yfirskriftinni HUGSUM FYRST – SKJÓTUM SVO. Allir velkomnir á meðan húsrúm leyfir.
Kl. 21:00 – Bryggjan. Guðbergskvöld. Aðalgestur kvöldsins verður heiðursborgari Grindavíkur Guðbergur Bergsson.
Húllum hæ í Verslunarmiðstöðin Víkurbraut 62. Opið til kl. 22:00. Fjöldi tilboða og kynningar.
Kl. 20:30 - Breytt útlit í samstarfi Betra Hár og Palóma.
Tískusýning, happadrætti. Veglegir vinningar í boði frá Betra hár, Lyfju, Palómu, Bókabúð Grindavíkur og Nuddstofu Ástu. Léttar veitingar.
Líf og fjör í Verslunarmiðstöðinni alla vikuna – kleinur og heitt á könnunni.