Söfn á Suðurnesjum hafa tekið höndum saman um að bjóða í fjórða sinn upp á sameiginlega dagskrá helgina 24. - 25. mars n.k. Athygli er vakin á því að ókeypis er inn á öll söfnin og þá dagskrá sem er í boði, þ.e. í Reykjanesbæ, Grindavík, Garði, Sandgerði og Vogum. Dagskrá helgarinnar má sjá hér.
Söfn, setur og sýningar á svæðinu eru mörg og fjölbreytt og því verður margt á döfinni og fjölbreytt dagskrá með ýmsum uppákomum og viðburðum. Auk þess eru ýmis gallerí opin þar sem handverk og listmunir eru til sýnis. Fulltrúar allra sveitarfélaganna fimm á Suðurnesjum hafa unnið sameiginlega að undirbúningi dagskrárinnar og er verkefnið stutt af Menningarráði Suðurnesja auk framlags sveitarfélaganna sjálfra.
Dagskrá safnahelgarinnar er hægt að nálgast á www.safnahelgi.is. Í henni kennir ýmissa grasa. Tónleikar, sýningar, fyrirlestrar, sagnastundir, og margs konar uppákomur. Listasmiðja fyrir börn, Gunnar Þórðarson er með tónleika auk þess sem haldin verður uppskriftarkeppni á saltfiskréttum. Boðið er upp á Rokk og ról og harmonikutónlist. Skessan í hellinum, Sköpun alheimsins svo fátt eitt sé nefnt. Í boði er sem sagt mjög fjölbreytt menningardagskrá og ókeypis afþreying fyrir alla fjölskylduna.
Meðal annars verður ókeypis á báðar sýningarnar í Kvikunni um helgina.