Bókasafnið stóð fyrir söng- og vísnakvöldi á kaffihúsi Bryggjunnar í gærkvöldi. Skemmtunin fór fram á efri hæðinni og mættu hátt í 150 manns þar sem m.a. boðið var upp á söng, kveðskap og upplestur, allt undir dyggri stjórn Agnars Steinarssonar.
Listafólk frá Grindavík var í aðalhlutverki en þar má nefna Stigamenn, Bakkalásystur, Dædu (Sæbjörgu M. Vilmundsdóttur), Alla (Aðalgeir Jóhannsson), Áka Erlingsson, Jón Ágúst Eyjólfsson, Sigurbjörn Dagbjartsson og Arneyju dóttur hans, Sigurð Ingvason, Sæbjargirnar og svo Friðarliljurnar og Grænabakkatríóið. Kvöldið tókst alveg ótrúlega vel og var stemmningin eins og best verður á kosið. Hér margsannaðist að maður er manns gaman og á bókasafnið heiður skilinn fyrir þessa skemmtilegu uppákomu í menningarvikunni.
Agnar Steinarsson söngvari, ljóðskáld og Útsvarskeppandi stjórnaði kvöldinu á sinn skemmtilega hátt.
Grænbakkatríóið flutti frumsamda og smellna texta.
Sigurður Ingvason kvað rímur.
Feðginin Arney og Sigurbjörn.
Stigamenn stálu senunni!
Gestirnir kunnu sannarlega að meta það sem var á boðstólum.
sss