Feðginin Sigurbjörn Dagbjartsson og Arney Sigurbjörnsdóttir skemmta og stjórna fjöldasöng á kaffihúsinu Bryggjunni á morgun, miðvikudag, kl. 21:00. Þau voru áður auglýst næsta laugardagskvöld en því hefur verið breytt.
Að sögn Sigurbjörns munu þau feðgin skemmta og stjórna fjöldasöng. Sigurbjörn er þekktur í grindvísku tónlistarlífi og dóttir hans hefur getið sér gott orð en hún vann m.a. söngvakeppni á Stöð 2 á síðasta ári.