Á mánudagskvöld fór fram generalprufa á árshátíðarleikriti skólans, Sagan segir! Óhætt er að fullyrða að hér er um stórfína skemmtun að ræða. Mikill metnaður er að baki sýningarinnar og standa leikarar sig virkilega vel í sínum hlutverkum. Frumsýningin sl. þriðjudag fyrir nemendur skólans. Bæjarsýningar verða síðan á miðvikudags- og fimmtudagskvöld kl. 20:00. Ritstjórn skólablaðsins í ár tók á dögunum viðtal við leikara og birtast nú viðtöl við þau Nínu og Daníel.
Daníel Snær - Valli
Hvað finnst þér um leikritið?
Öðruvísi.
Af hverju ákvaðstu að taka þátt í leikritinu?
Ég gerði það öll hin árin, þannig af hverju ekki núna?
Hvað finnst þér um leikstjórann?
Bara leikstjóri.
Hvað finnst þér um persónuna sem þú leikur?
Hann er ekkert spes.
Hvernig tengist hún atburðunum sem eiga sér stað?
Hann er aðalslúðrið ásamt Helenu.
Heldur þú að þú verðir leikari í framtíðinni?
Nei, líklegara að vera listamaður. Gæti kannski verið samt.
Nína María - Karítas
Hvað finnst þér um leikritið?
Mjög skemmtilegt.
Af hverju ákvaðstu að taka þátt í leikritinu?
Af því að ég hef tekið þátt öll árin og það er gaman að leika.
Hvað finnst þér um leikstjórann?
Fínn.
Hvað finnst þér um persónuna sem þú leikur?
Hún er mjög fjörug og skemmtileg.
Hvernig tengist hún atburðunum sem eiga sér stað?
Hún kemur slúðursögunum af stað.
Heldur þú að þú verðir leikari í framtíðinni?
Nei, ekki líklegt haha.