Hljómsveitin AdHd verður með tónleika á kaffihúsinu Bryggjunni mánudagskvöldið 5. mars. Tónleikarnir hefjast kl. 21:00. Hljómsveitin AdHd er landsmönnum að góðu kunn enda eru hér landsfrægir tónlistarmenn á ferð og er óhætt að segja að hljómsveitin sé skipuð fremstu djazztónlistarmönnum landsins.
Hljómsveitin er skipuð þeim:
Óskari Guðjónssyni - saxófónar
Ómari Guðjónssyni - gítar
Davíð Þór Jónssyni - Hammond og hljómborð
Magnús Trygvason Elíassen - trommur
Þeir flytja eigið efni sem þeir hafa gefið út á undanförnum árum á hljómdiskum.