Grindavíkurbær auglýsir hér með eftir leiðbeinendum til að starfa við leikjanámskeið bæjarins sumarið 2012. Starfstímabil er frá 30. maí til 27. júlí. Leitað er að einstaklingum 20 ára og eldri sem hafa;
- ríka þjónustulund,
- góða skipulagshæfileika, geta unnið sjálfstætt og tekið frumkvæði,
- góða hæfni í mannlegum samskiptum og síðast en ekki en síst
- reynslu og ánægju að því að vinna með börnum og unglingum.
Leiðbeinendur hafa umsjón með starfsemi leikjanámskeiðanna í samráði við sviðssstjóra frístunda- og menningarsviðs Grindavíkurbæjar.
Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og Verkalýðsfélags Grindavíkur.
Nánari upplýsingar um störfin veitir Kristinn J. Reimarsson sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs Grindavíkurbæjar í síma 660 7310, netfang: kreim@grindavik.is
Umsækjendur fylli út rafræna umsókn á heimasíðu Grindavíkurbæjar (www.grindavik.is/umsokn),
í síðasta lagi 22. mars n.k.
Grindavíkurbær.