Sumarstarf - Flokksstjórar viđ Vinnuskóla Grindavíkur

  • Fréttir
  • 23. febrúar 2012

Vinnuskóli Grindavíkur auglýsir hér með eftir flokksstjórum til að starfa við skólann sumarið 2012. Starfstímabil er frá 21. maí til 17. ágúst. Leitað er að einstaklingum 20 ára og eldri sem hafa;

- ríka þjónustulund,
- góða skipulagshæfileika, geta unnið sjálfstætt og tekið frumkvæði,
- góða hæfni í mannlegum samskiptum,
- mikla ábyrgðartilfinningu og síðast en ekki en síst
- ánægju að því að vinna með og leiðbeina unglingum.

Flokkstjórar stjórna daglegu starfi vinnuflokka skólans og stuðla að reglusemi , ástundun og góðri umgengni starfsmanna.

Flokkstjórar vinna með unglingunum og sýna þeim hvernig staðið skuli að verki og leiðbeina um notkun á áhöldum og tækjum.

VINNUSKÓLI GRINDAVÍKURBÆJAR ER TÓBAKSLAUS VINNUSTAÐUR.

Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og Verkalýðsfélags Grindavíkur.
Nánari upplýsingar um störfin veitir Ásta Jóhannesdóttir garðyrkjufræðingur Grindavíkurbæjar í síma 660 7322, netfang: astaj@grindavik.is 

Umsækjendur fylli út rafræna umsókn á heimasíðu Grindavíkurbæjar (www.grindavik.is/umsokn), í síðasta lagi 22. mars n.k.

Grindavíkurbær.


Deildu ţessari frétt

AĐRAR FRÉTTIR

Fréttir / 9. apríl 2024

Pistill bćjarstjórnar 9. apríl

Fréttir / 5. apríl 2024

Zimna woda w Grindavík

Fréttir / 3. apríl 2024

Hlúum ađ heilsunni. Ókeypis kostir