Skemmdir voru unnar á hraðvaraskilti á Austurvegi og nema þær nokkur hundruð þúsund krónur. Bæði var kastað grjóti í skiltið og líklega límdur flugeldur á það en ummerki eftir bruna má sjá á skiltinu. Þeir sem geta gefið upplýsingar um skemmdarvargana eru beðnir að hafa samband við lögreglu eða tæknideild Grindavíkurbæjar í síma 420 1100.