Það verður mikið um dýrðir í Garðinum á laugardagskvöldið 25. febrúar kl. 20:00. Efnt verður til Vita- og vísnahátíðar í Garðskagavita og Byggðasafninu á Garðskaga, með þátttöku rithöfunda, tónlistarfólks og fjöllistamanna. Dagskrá Vita- og vísnahátíðar 2012:
GARÐSKAGAVITI - laugardagskvöldið 25. febrúar kl. 20:00:
Upplestur: Anton Helgi Jónsson rithöfundur les eigin ljóð. Guðný Kristjánsdóttir frá Leikfélagi Keflavíkur les úr bókinni Sjókonur eftir Þórunni Magnúsdóttur, sagnfræðing. Steinar Lúðvíksson, rithöfundur og blaðamaður segir rá sjóslysum við Reykjanes. Kynnir Sigríður Arna Arnþórsdóttir, landfræðingur og stjórnarmaður í Íslenska vitafélaginu - félag um íslenska strandmenningu.
Tónlistaratriði: Nemendur Tónlistarskólans í Garði breyta vitanum í tónleikahöll og flytja þar fjölbreytt tónlistaratriði af stakri snilld.
Umhverfislýsing: Utandyra sér fjöllistahópurinn Norðanbál um að skapa ævintýralega stemmningu á staðnum með því að lýsa upp vitana.
Veitingastaðurinn Tveir vitar býður öllum viðsöddum boðið upp á heitt súkkulaði og vöfflur með rjóma
Aðgangur er ókeypis.
GARÐSKAGAVITI - Laugardagskvöldið 3. mars kl. 19:30
Upplestur rithöfunda: Birgir Svan Símonarson, Illugi Jökulsson og Oddný Eir Ævarsdóttir lesa úr eigin verkum. Kynnir; Sigurbjörg Árnadóttir, formaður Íslenska vitafélagsins - félag um íslenska strandmenningu og verkefnisstjóri Trossunnar/Fishernets hjá Stofnun Vilhjálms Stefánsson
Tónlistaratriði frá Tónlistarskólanum í Garði
Umhverfislýsing Norðanbáls
Aðgangur er ókeypis.
BYGGÐASAFNIÐ GARÐSKAGA - Laugardagskvöld 3. mars kl. 20:30
Einstök tónlistarveisla í byggðasafninu!
Fram koma:
Guðrún Gunnarsdóttir (söngur) og Gunnar Gunnarsson (píanó)
Gunnar Þórðarson - hinn eini sanni Keflvíkingur
Elín Ey - einn efnilegasti trúbador yngri kynslóðarinnar
Valgeir Guðjónsson - Stuðmaður með meiru
Nordisk Knock-Out - Frábært vísnatríó frá Skandinavíu
Of Monsters and Men - stolt Garðsins, og bráðum Íslands alls
Kynnir verður Aðalsteinn Ásberg Sigurðsson.
Aðgangseyrir kr. 2.500- . Forsala hjá N1 Dúddunum í Garðinum, sími 8967706
Það má enginn missa af þessum frábæru tónleikum!