Kvartanir hafa borist vegna lausra hunda í bænum. Borið hefur á því að hundaeigendur sem hafa verið í göngutúr með hundana sína t.d. snemma á morgnana losi tauminn af þeim og haft þá frjálsa þannig að öðrum gangandi vegfarendum hefur þeim fundist standa ógn af. Í samþykkt um hundahald kemur skýrt fram að hundur skuli ekki ganga laus á almannafæri.
Í samþykkt um hundahald á Suðurnesjum segir:
„Hundur skal aldrei ganga laus á almannafæri heldur vera í taumi í fylgd aðila sem hefur fullt vald yfir honum. Eigi er leyfilegt að fara með hund inn í skóla, íþróttahús, sundstaði, barnaleikvelli, almenningsfarartæki, matvöruverslanir, fiskverkunarhús eða aðra staði þar sem matvæli eru um hönd höfð, ennfremur sjúkrahús, kirkjur, bókasöfn og aðrar opinberar stofnanir.“
Þá hefur verið kvartað yfir hundaskít en í reglugerðinni segir: „Hundaeigendum ber að viðhafa fullkomið hreinlæti í meðferð hunda sinna og m.a. fjærlægja hundaskít."
Sjá nánari upplýsingar hér.