Sáttmáli gegn einelti - Jákvćđ samskipti í Grunnskóla Grindavíkur

  • Fréttir
  • 24. janúar 2012

Allir nemendur Grunnskóla Grindavíkur skrifuðu undir sáttmála gegn einelti og tóku þátt í umræðu um jákvæð samskipti í desember.  Meginmarkmið með þessari aðgerð er að fylgja eftir útgáfu á bæklingi um einelti sem gefinn var út í Grindavík og síðast en ekki síst vekja samfélagið til umhugsunar um þessi mál og fá opna umræðu um eineltismál almennt og hvetja til samstöðu í jákvæðum samskiptum. 

Nú hefur sáttmálinn verið stækkaður upp og afhendur nemendum í báðum skólum Grunnskóla Grindavíkur. Það voru þeir Róbert Ragnarsson bæjarstjóri og Pálmi Ingólfsson skólastjóri sem færðu nemendum sáttmálann á sjálfum bóndadeginum. Nemendur úr nemendaráði sáu síðan um að hengja sáttmálann upp á áberandi stað á sal skólans.


Deildu ţessari frétt

AĐRAR FRÉTTIR

Fréttir / 10. apríl 2024

NIE ZAPOMINAJMY O OKAZJACH DO RADOSCI

Fréttir / 9. apríl 2024

Pistill bćjarstjórnar 9. apríl

Fréttir / 5. apríl 2024

Zimna woda w Grindavík

Fréttir / 3. apríl 2024

Hlúum ađ heilsunni. Ókeypis kostir

Fréttir / 3. apríl 2024

Höfum gleđina međ!