Viltu meiri gleði inn í líf þitt? Viltu meiri árangur í lífi og starfi? Námskeið á vegum MSS í Grindavík (eitt kvöld). FINNDU ELDMÓÐINN er einföld en árangursrík leið að innri eldi okkar sem skerpir fókus og auðveldar forgangsröðun í lífi og starfi.
Þeim sem knúnir eru af innra eldri lifa fyrir hugðarefni sín. Líf þeirra og ástríða eru samstillt og hjálpa þeim að yfirstíga hindranir sem öðrum vaxa í augum. Fjárfestu í sjálfum þér; finnum eigin eldmóð og mætum sterk til leiks í vetur!
Hvað gæfi þér að vinna af hugsjón og ástríðu, fremur en skyldunni einni saman?
Leiðbeinandi er Rósa Halldórsdóttir.
Staður: Víkurbraut 56
Tími: Fimmtudagur 9. febrúar frá kl. 19:00-22:00.
Verð: 9.000 kr.
Skráning í síma 412 5967 / 412 5940 eða á eydna@mss.is