Líkt og undanfarin ár var bóndadagurinn haldinn hátíðlegur í Grunnskóla Grindavíkur. Hefð er orðin fyrir því að stúlkurnar hafi til gott bakkelsi og taki með sér í skólann til að bjóða drengjunum upp á. Sem fyrr var það hið glæsilegasta eins og sjá má á meðfylgjandi myndum.
Stelpurnar í 6.KM við undirbúning
Stúlkurnar í 4.H tóku vel á móti drengjunum í sínum bekk
Stórglæsileg bóndadagsterta
Nemendur í 6.KM að fá sér kökur og djús
Nemendur í 6.S
Ánægðir nemendur í 4.H
Saddir og sælir nemendur 6.KM