Nokkrir vaskir slökkviliðsmenn í Slökkviliði Grindavíkur tóku sig til um helgina og merktu forystubifreið flotans (24-131). Merkingarnar eru mjög áberandi, ekki síst í myrkri, eins og meðfylgjandi myndir sína og voru slökkviliðsmennirnir mjög ánægðir með árangurinn enda eykur þetta öryggi þeirra á vettvangi bruna. Segja má að slökkvibíllinn sé sjálflýsandi. Hér má sjá fleiri myndir: