„Þetta kom mér mjög skemmtilega á óvart," segir Rósalind Gísladóttir, óperusöngkona og söngkennari við Tónlistarskóla Grindavíkur, sem nýverið sigraði í söngkeppninni Barry Alexander International Vocal Competition (BAVIC). Í sigurlaun fær hún að syngja einsöng í hinu víðfræga tónlistarhúsi Carnegie Hall í New York 29. janúar nk.
„Þetta verður góð reynsla auk þess sem það er frábært að fá að syngja í svona flottu húsi," segir Rósalind. Spurð hvort hún geri sér vonir um að tónleikarnir geti reynst henni stökkpallur inn í tónlistarheiminn erlendis segir Rósalind að tíminn einn verði að leiða það í ljós.
BAVIC-keppnin skiptist í fjóra flokka og keppti Rósalind í flokki atvinnumanna. Að sögn Rósalindar sendir hver keppandi inn nokkrar hljóð- og myndupptökur af sér frá ólíkum tónleikum og eru úrslitin ákveðin á grundvelli þeirra. „Mér finnst þetta að því leyti mjög sanngjörn keppni að dómnefndin leitast við að meta hvernig söngvarar standa sig undir eðlilegum aðstæðum á tónleikum frekar en undir keppnispressu og reyna að taka inn í reikninginn allt sem góður söngvari þarf að hafa til brunns að bera," segir Rósalind. Alls hlutu sex söngvarar frá fimm löndum fyrstu verðlaun í flokki atvinnumanna í keppninni í ár og koma þeir allir fram á fyrrnefndum tónleikum.
Undirbúningur kominn á fullt
Aðspurð segir Rósalind undirbúning tónleikanna standa sem hæst um þessar mundir. „Maður þarf auðvitað að þekkja textann og aðstæður óperupersónanna vel til þess að geta túlkað tónlistina sem skyldi. Ég fæ að syngja 20 mínútna prógramm sem gerir þrjár til fjórar aríur," segir Rósalind og tekur fram að hún sé enn ekki alveg búin að velja, en aríurnar sem til greina komi séu dramatískar aríur á borð við O don fatale sem Eboli syngur í Don Carlo eftir Verdi, Condotta sem Azucena syngur í Il Trovatore eftir Verdi sem og sígaunasöngur Carmenar úr samnefndri óperu eftir Bizet þar sem meiri glens og gleði er ríkjandi.
„Ég hef í gegnum tíðina mest sungið Mozart og Rossini, þannig að ef ég vildi sýna mikla breidd í röddinni þá myndi ég syngja kóloratúraríuna Una voce poco fa sem Rosina syngur í Rakaranum í Sevilla eftir Rossini. Ég hef alltaf litið á mig sem lýrískan mezzósópran, en raddlega er ég stödd mitt á milli þess að vera dramatískur mezzósópran og kóloratúrmezzósópran. Það gæti því verið gaman að sýna að ég ráði vel við hvort tveggja," segir Rósalind og tekur fram að hún sæki um þessar mundir einkatíma hjá Kristjáni Jóhannssyni óperusöngvara. „Hann er að syngja mig yfir í meira drama og mér líður mjög vel í því. Það er því erfitt að velja á milli því þetta er allt svo skemmtilegt."
Viðtal: Morgunblaðið.