Slökkvilið Grindavíkur auglýsir stöður fyrir hlutastarfandi slökkviliðsmenn lausar til umsóknar. Umsækjendur þurfa að uppfylla eftirfarandi skilyrði:
• Hafa góða líkamsburði, vera andlega og líkamlega heilbrigðir, reglusamir og háttvísir, hafa góða sjón og heyrn, rétta litaskynjun og vera ekki haldnir lofthræðslu eða innilokunarkennd.
• Hafa að lokinni reynsluráðningu aukin ökuréttindi til að stjórna vörubifreið .
• Hafa iðnmenntun sem nýtist í starfi slökkviliðsmanna eða sambærilega menntun og reynslu.
• Umsækjendur þurfa að standast læknisskoðun.
Nánari upplýsingar um starfið veitir slökkviliðsstjóri í síma 660 7311.
Umsóknarfrestur er til og með 1. febrúar 2012.
Umsóknareyðublað er á http://www.grindavik.is/eydublod (Umsókn um starf hjá Grindavíkurbæ).
Umsóknum skal skila til: Slökkviliðsstjóri, Hafnargötu 13, 240 Grindavík,
eða á netfangið slokkvilid@grindavik.is
Slökkviliðsstjóri