Sólin frá Sandgerði stöðvaði sigurgöngu Vísis í firmakeppni UMFG og Eimskipa sem haldin var að venju milli jóla og nýárs. Liðin mættust í úrslitaleiknum þar sem ekkert mark var skorað. Þurfti að grípa til vítaspyrnukeppni þar sem Sólin hafði betur 4-3 en Vísir hafði unnið firmakeppnina síðustu tvö árin á undan.
Alls mættu 16 karlalið til leiks og tvö kvennalið. Sólin frá Sandgerði verðskuldaði sigurinn á mótinu en Vísismenn sýndu ótrúlega seiglu bæði í fjórðungsúrslitum og undanúrslitum með því að jafna í blálokin í báðum leikjunum og vinna í framlengingu.
Á efstu myndinni eru liðsmenn Sólarinnar frá Sandgerði ásamt Jónasi Þórhallssyni formanni knattspyrnudeildar.
Lið Vísis sem varð í 2. sæti.
Ásgarðsmenn urðu bara í 3. sæti þrátt fyrir að hafa keypt þá Guðjón Pétur Lýðsson frá Val og Þórhall Dan.