Þann 28. desember sl. skrifuðu HS Orka og Grindavíkurbær undir samning um samstarf varðandi auðlindanýtingu og starfsemi HS Orku í lögsagnarumdæmi Grindavíkur. Samningurinn nær til allmargra atriða svo sem afhendingu orku til iðnferla í Grindavík, uppbyggingu og kynningu á iðnaðarsvæði, um Eldfjallagarð, Auðlindahús, uppbyggingu orkuvera og um samráð um rannsóknir og virkjun jarðhita.
Með þessum samningi er samstarf aðila komið í skipulegan farveg og þess vænst að í framtíðinni stuðli hann að eflingu atvinnustarfsemi í Grindavík og aukinni og bættri nýtingu auðlinda á svæðinu.
Einnig var undirritað samkomulag þar sem kveðið er á um fyrirframgreiðslu HS Orka á landleigu og auðlindagjald út samningstímann samkvæmt samningi sem undirritaður var 17. maí 2010. Þar með falla niður allar greiðslur Grindavíkurbæjar vegna hins keypta lands og auðlinda í Svartsengi.