Gjaldskylda tekin upp á endurvinnslustöđvum - Gjaldskrárbreytingar hjá Kölku 1. janúar 2012

  • Fréttir
  • 29. desember 2011

Hjá Kölku - Sorpeyðingarstöð Suðurnesja sf. hefur verið tekin ákvörðun um breytingar á gjaldskrám fyrirtækisins sem taka gildi hinn 1. janúar 2012. Endurskoðun á gjaldskrám fyrirtækisins voru síðast gerðar hinn 1. febrúar 2010. Breytingar taka m.a. mið af þróun verðlags og einnig hafa kostnaðaráhrif mismunandi tegunda úrgangsefna verið endurmetin. Gjaldskrám Kölku er nú skipt í fjóra mismunandi flokka sem eru eftirfarandi:

• Gjaldskrá fyrir stofnanir og fyrirtæki

• Gjaldskrá á endurvinnslustöðvum Kölku í Vogum, Grindavík og Helguvík
• Almenn gjaldskrá fyrir spilliefni
• Gjaldskrá fyrir spilliefni og önnur skilgreind efni frá verktökum Úrvinnslusjóðs
Gjaldskrárnar eru birtar á heimasíðu fyrirtækisins, www.kalka.is.

Gjaldskylda á endurvinnslustöðvum
Frá og með 1. janúar 2012 verður tekin upp gjaldskylda á endurvinnslustöðvum Kölku í Vogum, Grindavík og Helguvík fyrir tiltekin úrgangsefni frá heimilum. Gert er ráð fyrir að greitt verði með greiðslukortum. Áfram verða fjölmargar tilgreindar tegundir úrgangsefna undanþegnar gjaldskyldu eins og verið hefur.
Með þessari breytingu verður rekstraraðilum leyft að losa sig við úrgangsefni í takmörkuðu magni á endurvinnslustöðvunum. 
Vakin er athygli á því að allur úrgangur sem berst á endurvinnslustöðvar Kölku með bifreiðum sem bera rauðar númeraplötur og/eða eru merktar fyrirtækjum, er litið á sem gjaldskyldan rekstrarúrgang. Úrgangur frá fyrirtækjum sem að mati starfsmanna Kölku er ekki móttökuhæfur á endurvinnslustöð, verður vísað til móttökustöðvar í Helguvík.

Gjaldtaka á endurvinnslustöðvunum verður samkvæmt rúmmáli og í gjaldskránni er skilgreint hvaða úrgangsefni eru gjaldskyld og hvaða úrgangsefni eru án gjaldskyldu fyrir heimili. Einnig má sjá gjaldskyldu og undanþágur fyrir rekstraraðila. Fyrir rekstraraðila vísast að öðru leyti til gjaldskrár fyrir stofnanir og fyrirtæki.

Gjaldskrár fyrirtækisins má sjá og kynna sér á heimasíðunni, www.kalka.is. Allar frekari upplýsingar eru veittar á skrifstofu fyrirtækisins í síma 421-8010.

Vakin er athygli á að allur úrgangur sem móttekinn er á endurvinnslustöðvum Kölku þarf að vera vel flokkaður.

Sjá auglýsingu hér til útprentunar.

 


Deildu ţessari frétt

AĐRAR FRÉTTIR

Fréttir / 9. apríl 2024

Pistill bćjarstjórnar 9. apríl

Fréttir / 5. apríl 2024

Zimna woda w Grindavík

Fréttir / 3. apríl 2024

Hlúum ađ heilsunni. Ókeypis kostir