Grindavíkurbær auglýsir hér með eftir leiðbeinanda til að starfa við félagsmiðstöðina Þrumuna vorið 2012. Starfstímabil er frá 1. febrúar til 10. maí. Um tímabundna ráðningu er að ræða en þó með möguleika á áframhaldandi vinnu næsta haust. Leitað er að einstaklingi 25 ára og eldri sem hefur;
- ríka þjónustulund,
- góða skipulagshæfileika, getur unnið sjálfstætt og tekið frumkvæði,
- góða hæfni í mannlegum samskiptum og síðast en ekki en síst
- reynslu og ánægju að því að vinna með börnum og unglingum.
Æskilegt er að viðkomandi hafi uppeldismenntun og helst á sviði tómstunda- og félagsmála.
Vinnutími er seinni part dags og fram á kvöld flesta virka daga. Unnið er á vöktum. Eitt af meginverkefnum yfirleiðbeinanda er að framfylgja markmiðum í starfi Þrumunnar sem og að virkja þátttöku og frumkvæði ungs fólks í starfi. Jafnframt sér yfirleiðbeinandi um að skipuleggja og undirbúa dagskrárliði í samvinnu við Þrumuráð og í samráði við sviðsstjóra frístunda- og menningarsviðs Grindavíkurbæjar.
Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands sveitarfélaga og Verkalýðsfélags Grindavíkur.
Nánari upplýsingar um störfin veitir Kristinn J. Reimarsson sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs Grindavíkurbæjar í síma 660 7310, netfang: kreim@grindavik.is
Umsækjendur fylli út umsóknareyðublað sem er að finna á heimasíðu bæjarins (Umsókn um starf hjá Grindavíkurbæ) og skili á bæjarskrifstofu Grindavíkur í síðasta lagi fimmtudaginn 15. janúar n.k.
Grindavíkurbær.