Í gærkvöldi mætti kjötkrókur í verslunarmiðstöðina til að draga í Jólaleik Grindavík-Experience. Dregnir voru út 20 glæsilegir vinningar en verðmæti þeirra er á þriðja hundrað þúsund krónur. Þátttakan í jólaleiknum hefur aldrei verið betri og viljum við þakka öllum þeim sem tóku þátt og óska vinningshöfum til hamingju. Vinningshafar eru:
25.000 gjafakort - Snædís Guðjónsdóttir
25.000 gjafakort - Eyrún Samúelsdóttir
5000 gjafakort:
Guðbjörg Eyjólfsdóttir
Rósa Signý Baldursdóttir
Margrét Sigurðardóttir
Þorgerður Guðmundsdóttir
Laufey Sigurðardóttir
Eva Sigurðardóttir
Ragna í Nettó
+ 3 aðrir með illskiljanlega skrift!
12 manna terta að eigin vali frá Hérastubbi bakara - Guðrún Dröfn Birgisdóttir.
Gisting fyrir 2 í eina nótt hjá Gistiheimilinu - Belinda Berg Jónsdóttir.
Kvöldverður fyrir tvo á Salthúsinu - Elvar Jónsson.
Kvöldverður fyrir tvo á Lava, Bláa lóninu - Sigríður Hammer.
Ársmiði á leiki Grindavíkur í Pepsideild karla sumarið 2011 - Petra Rós.
5000 kr. gjafakort í Bókabúðinni - Kolbrún Guðmundsdóttir.
Fjórhjólaferð fyrir tvo í eina klst (2 á hjóli) með Fjórhjólaævintýri - Maríanna Adólfsdóttir.
Gjafabréf að verðmæti 10.000 hjá Northern Light inn - Elínborg Ingvarsdóttir eldri.
Búið er að hringja í vinningshafa en þeir geta nálgast gjafabréfin í versluninni Palómu fyrir 31. janúar nk.
Myndin var tekin af kjötkróki í verslunarmiðstöðinni í gær eftir að búið var að draga vinningana en yngri kynslóðin sótti í að fá að mynda sig með honum.