Á fundi bæjarstjórnar í gær voru samþykktar álagningarreglur fasteignagjalda og gjaldskrá þjónustugjalda fyrir árið 2012. Almennt hækka gjaldskrár um 5% í samræmi við verðlagsbreytingar, en gjald vegna matar í leikskóla hækkar um 10% til að standa undir hráefniskostnaði. Greiðsluþátttaka foreldra í skólamáltíðum grunnskóla verði 55% af innkaupsverði. Innkaupsverð frá Skólamat verður 507 kr. frá 1. janúar 2012, þannig að greiðsluþátttaka foreldra verður 279 kr. Sjá nánar hér (mál nr. 5, 6, 7 og 8).